Af hverju pysjueftirlit?

Með skráningu og vigtun þeirra pysja sem bjargað er árlega má meta varpárangur lundastofnsins í Eyjum og spá fyrir um nýliðun í varpstofninum, stærð árganga og fæðuframboðs í sjónum. Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu verkefni og hjálpa okkur við að fylgjast með lundastofninum. Þitt framlag skiptir miklu máli.

 

Hvernig á að skrá upplýsingarnar?

Skráið upplýsingar um pysjurnar aftan á pysjueftirlitsbæklinginn eða prentið út þetta eyðublað. Þegar allar pysjur hafa verið skráðar þá er hægt að slá upplýsingarnar inn hérna á þessari síðu eða skila blöðunum til Sparisjóðsins, Rannsóknarsetursins eða Náttúrugripa- og fiskasafnsins.

 

Hvað á að skrá?

  • Heildarfjölda pysja sem er bjargað á hverri nóttu.
  • Dagsetningu og tíma. Notið dagsetningu kvöldsins sem leiðangurinn hefst og haldið þeirri dagsetningu þrátt fyrir að nýr dagur hefjist á miðnætti! 
  • Þyngd á öllum pysjum sem þú veiðir á nóttu.
  • Veðurfar

 

Við hvetjum alla til að koma með pysjurnar á Náttúrugripa- og fiskasafnið milli kl. 14:00 og 15:00 svo hægt sé að vigta þær og mæla. Einnig er hægt er að nota vigtina við Náttúrugripa- og fiskasafnið og vigta strax um nóttina.

 

Hver pysja skiptir máli og því er mikilvægt að skrá allar þær pysjur sem veiðast.

 

 
Sparisjóður Vestmannaeyja

Verkefnið er styrkt af Sparisjóði Vestmannaeyja.

Hafa samband

Páll Marvin Jónsson

pmj@eyjar.is
sími 481-1111